Ég heiti Alís Ólafsdóttir og er 24 ára gömul yngismey. Ég er fædd og uppalin á Akureyri á Íslandi. Ég á rætur mínar að rekja til Noregs og er nokkuð mikill nossari í mér
Betri helmingurinn minn heitir Ingimundur Norðfjörð og við eigum saman kisu sem heitir Sossa. Við erum að leigja samn íbúð og lifum í sátt og samlyndi og rífumst aldrei...hehemm
Very nice!
Það sem ég geri þessa dagana er að vera tímabundinn, ég endurtek TÍMABUNDINN öryrki og svo vinn ég líka í 66 norður á Akureyri. +Eg eyði því tíma mínum í að sinna líkama og sál og koma mér aftur í samt form til að geta byrjað að lifa lífinu aftur vel og vandlega sem fyrst
Mér þykir rosa gaman að hanga og gera ekki neitt og geri það best með Hönnunni minni. Er algert letidýr og elska að gera góða hluti fyrir sjálfa mig
það er að borða góðan mat og versla og soleis hluti sem mig vantar ekki neitt. Alltaf gaman hjá Alís
haha..annars er ég komin með nýtt áhugamál og það er að fara í ræktina
hverjum hefði grunað það ha???
Mig langar að fara í skóla og er mikið að spá í að fara í VMA og fara á listnámsbraut. Kláraði stúdentinn 2004 þannig að ég er alveg til í að setjast aftur á skólabekk bráðum
Mér finnst mjög gaman að ferðast og er oftast með nokkrar ferðir í bakhöndinni og læt mig dreyma....ef ég bara myndi vinna í lottó!
Uppáhalds málshátturinn minn er "Eins og fluga úr heiðskíru lofti" (homemade) og reyni að koma honum óspart að í samræðum við fólk.
Uppáhalds kvótið mitt úr kvikmynd er "The things I'm gonna do for my country"
Upáhalds Friends kvótin mín eru: "Not just a hatrack my friend" og "Hey I've been married three times!!!(klapp klapp klapp)