Hæhæ!!!
Helgin mín var svona very nice Var ein heima alla helgina þar sem Ingi var í borginni og naut ég þess í botna að eyða tíma með sjálfri mér og Greys Á laugardag var hin víðfræga Akureyrarvaka og ákváðum því ég og Hanna og Raggý (mamma Hönnunnar) að vera gríðarlega menningarlegar og skelltum okkur á markað uppá Hömrum til styrktar börnum í Mósambík. Verslaði þessa gríðarlega sneddí jólagjöf handa tengdapabba svo fórum við líka á nýju opnunina á Frúnni í Hamborg! Búðin bara komin á nýjan stað og ekkert smá flott uppáhaldsbúðin mín þessa dagana sko og svo fórum við líka á kaffihús og rúntuðum allar þrjár mjög svo menningarlegar....eyddi svo kvöldinu með Greys
Í gær var ég bara í tjillinu með Bróa og við ákváðum að fara aftur á markaðinn góða og í þessarri ferð ferði ég nú heldur betur góð kaup verð ég að segja keypti mér splunkunýtt sófasett, beint úr Húsgögnin heim á spottprís (reyndar Húsgögnin uppá markað og svo heim hehe)!! erum ekkert smá ánægð með settið og það er svona glæsilegt í stofunni okkar og alger snilld hvað það er þægilegt! very nice yes!!! keypti mér líka gamlan og dúndurgóðan geisladisk nep Whitney Houston og svo 3 plötur nú vantar mig bara plötuspilara....ef einhver veit um spilara sem virkar, annaðhvort gefins eða til sölu, let me know
Annars er ég bara að deyja í dag....úr kvefi, hálsbólgu og hausverkekki gaman....þarf samt að halda áfram að taka til hendinni hér heima og hagræða hlutunum svo að settið njóti sín
Jæja farin......Alís SófaSan
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.