...er ég komin heim það tókst ekki í fyrstu tilraun þar sem heppnilingurinn ég náði að krækja mér í smá stress rétt fyrir brottför og fór beinustu leið uppá "Riksen" og þurfti að vera þar í 2 dags....já alltaf jafn heppinNOT hehe En ég vil meina að þetta hafi komið sér vel þar sem ég náði að kaupa mér eitt stykki skó í framlengingunni, eitthvað sem ég hefði ekki gert ef ég hefði komist heim í fyrstu tilraunsvona ráðast örlögin
Við Ingi flugum heim til Íslands í gær og sökum langvarandi þrár að komast heim til Sossu ákváðum við að keyra heim til Ak strax í gærkvöldi. Sossa tók að sjálfsögðu á móti mömmu sinni eins og páfinn væri mættur á svæðið og hún er búin að vera algert yndi og kúra hjá manni non stop.
Í dag byrjuðum við Ingi daginn á að þrífa allt pleisið, sem bæ ðe bæ er enn soldið dirty (PIRR), og svo nenntum við ekki meir og hann fór í golf og ég hitti mína heittelskuðu Hönnu sem ég var búin að sakna svo mikiðrúntuðum í hringi og fórum í bónus, sem við gerum svo oft saman hehe
Nú er ég stödd í Kotinu og við erum að fara að borða og svo horfa á vidjó frá því í Noregsferðinnivery nice
Jæja ég er farin að síga...Alís Pirraða-en-samt-ánægð-að-vera-komin-heim-San
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.